Metabolic kerfið

Metabolic Reykjavík er þjálfunarstöð sem er sérsniðin að þeim sem vilja fjölbreytta, faglega og skemmtilega heilsurækt og komast í sitt allra besta form. Í Metabolic bjóðum við upp á það besta úr einkaþjálfunar- og hóptímaheiminum. 

Æfingakerfið er íslenskt og er hannað af Helga Jónasi Guðfinnssyni sem er líklega þekktastur fyrir afrek sín á körfuboltavellinum, en síðusta rúmlega áratuginn hefur hann helgað sig þróun á Metabolic æfingakerfinu. 

Í kerfinu eru engar tilviljanir, hvorki í upphitun, niðurlagi og allra síst í æfingunum sjálfum. Því Helgi sér til þess að við séum að nota það allra nýjasta úr rannsóknum í heilsurækt hverju sinni. 

Æfingasvæði Metabolic rvk

Við erum stolt af æfingasvæðinu okkar sem hefur þróast og breyst á hverju ári með breyttum þörfum iðkendanna sem styrkjast og vaxa með okkur.

Aðstaða og búnaður

forsaga Metabolic Reykjavík

Eygló hóf samstarf við Metabolic Ísland árið 2013 og opnaði þá fyrir hóptímaþjálfun í Árbæ í samstarfi við Árbæjarþrek.

Þar blómstraði starfssemin til ársins 2016 eða þangað til Árbæjarþrek lokaði.

Það var svo árið 2018 að Eygló fann húsnæðið að Stórhöfða og eftir langar samningaviðræður við eiganda hússins var loks skrifað undir leigusamning. Breyta þurfti rýminu úr öldurhúsi yfir í íþróttasal og það tókst á undraskömmum tíma. 

Metabolic Reykjavík opnaði í núverandi mynd þann 7. janúar 2019 og þá var Eygló ein af þremur eigendum.

Bryngeir nýr meðeigandi 2024

Bryngeir tók við sem meðeigandi Metabolic Reykjavík árið 2024 og sér um daglegan rekstur stöðvarinnar.

Hann er kennari að mennt, knattspyrnudómari og hefur starfað við þjálfun um árabil.

Það sem heillar Bryngeir mest við Metabolic er ekki bara þjálfunin sjálf, heldur samfélagið sem myndast þegar fólk kemur saman með sameiginleg markmið.

Hann leggur áherslu á fagmennsku, gleði og umhverfi þar sem allir geta fundið sinn stað, hvort sem þeir eru að stíga sín fyrstu skref eða hafa æft árum saman.

Markmið hans er að Metabolic Reykjavík sé staður þar sem fólk hlakkar til að mæta, finnur stuðning og verður sterkari útgáfa af sjálfu sér.

Þjálfararnir þínir

Allir þjálfarar hjá Metabolic Reykjavík hafa lokið námi  og hlotið viðeigandi þjálfun í starfi.

Bryngeir Valdimarsson

ISSA Certified Personal Trainer, Corrective Exercise Specialist and Fitness Coach.

Bryngeir hefur verið eigandi og stöðvarstjóri frá 2024.

Hann er kennari að mennt, knattspyrnudómari og hefur starfað við þjálfun um árabil.

Ragnar hefur einstaka ástríðu fyrir styrktarþjálfun. 

Hann tekur einnig að sér einkaþjálfun fyrir almenning og afreksíþróttafólk í Metabolic salnum. 

In addition to coaching Metabolic group classes, Chase offers private and small group strength and mobility training for the general public and athletes hoping to fortify their joints and address pain and/or mobility limitations as they progress towards their goals.

Jakob þjálfar hóptíma Metabolic. Hann hefur mikla ástríðu fyrir styrktarþjálfun og sér að hluta til um að prógramma MST æfingar. 

Hann tekur einnig að sér einkaþjálfun fyrir almenning og afreksfólk í Metabolic salnum. 

Steinunn Birta

BsC og MsC í íþróttafræði frá HR.

Steinunn hefur verið í teyminu frá fyrsta degi opnunar og þjálfar hóptíma Metabolic ásamt því að prógramma hluta Vol2 æfingar.

Hún hefur æft íþróttir og stundað lyftingar í mörg ár. Hennar reynsla skilar sér beint í æfingarnar okkar.

Bryndís þjálfar mömmunámskeið sem einblínir á að byggja upp konur eftir meðgöngu og fæðingu.

Bryndís býður einnig uppá einkaþjálfun þar sem áherslan er á byrjendur eða fólk sem er að byrja aftur eftir hlé frá þjálfun.

Anton hóf störf hjá Metabolic í mars 2025 og þjálfar þar hóptíma. 

Hann starfar einnig sem íþróttakennari og hefur æft íþróttir frá unga aldri. 

Anton brennur fyrir að hjálpa fólki að ná markmiðum sínum og finnna gleði í hreyfingu. 

María Ögn

xo

xo

xo

xo

xo